Auðarstræti 13

Verknúmer : BN031265

343. fundur 2005
Auðarstræti 13, (fsp) hækkun á þaki
Spurt er hvort leyft yrði að hækka þak og taka í notkun þakhæð hússins á lóðinni nr. 13 við Auðarstræti.
Erindinu fylgir ljósmynd af húsi í hverfinu þar sem svipuð breyting hefur verið gerð.
Jafnframt lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. apríl 2005 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. apríl 2005 fylgja erindinu.
Neikvætt.
Miðað við framlögð gögn og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.


63. fundur 2005
Auðarstræti 13, (fsp) hækkun á þaki
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 5. apríl 2005, þar sem spurt er hvort leyft yrði að hækka þak og taka í notkun þakhæð hússins á lóðinni nr. 13 við Auðarstræti. Erindinu fylgir ljósmynd af húsi í hverfinu þar sem svipuð breyting hefur verið gerð. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. apríl 2005.
Neikvætt gagnvart framlagðri tillögu að hækkun. Ekki er gerð athugasemd við hækkun húss í samræmi við rammaskilmála Norðurmýri samkvæmt leiðbeiningum í umsögn skipulagsfulltrúa.

341. fundur 2005
Auðarstræti 13, (fsp) hækkun á þaki
Spurt er hvort leyft yrði að hækka þak og taka í notkun þakhæð hússins á lóðinni nr. 13 við Auðarstræti.
Erindinu fylgir ljósmynd af húsi í hverfinu þar sem svipuð breyting hefur verið gerð.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.