Sunnuvegur 31

Verknúmer : BN031057

13. fundur 2005
Sunnuvegur 31, viðbygging
Að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsóknar er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 1. mars 2005, þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi húss, loka opnu bílskýli undir húsi og byggja viðbyggingu og svalir að vesturhlið hússins á lóðinni nr. 31 við Sunnuveg. Málið var í kynningu frá 1. mars til 18. apríl 2005. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: Stækkun 65,7 ferm., 247,9 rúmm.
Gjald kr. 5.700 +14.130
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


339. fundur 2005
Sunnuvegur 31, viðbygging
Sótt er um leyfi til þess að útbúa íbúðarherbergi með eldunaraðstöðu á fyrstu hæð, breyta innra fyrirkomulagi húss, loka opnu bílskýli undir húsi og byggja viðbyggingu úr gleri og svalir að vesturhlið hússins á lóðinni nr. 31 við Sunnuveg.
Stærð: Stækkun 65,7 ferm. og 247,9 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 14.130
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað til uppdrátta nr. 01-06 dags. 1. febrúar 2005.


58. fundur 2005
Sunnuvegur 31, viðbygging
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 1. mars 2005, þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi húss, loka opnu bílskýli undir húsi og byggja viðbyggingu og svalir að vesturhlið hússins á lóðinni nr. 31 við Sunnuveg.
Stærð: Stækkun xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Sunnuvegi 29 og 33 þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.

337. fundur 2005
Sunnuvegur 31, viðbygging
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi húss, loka opnu bílskýli undir húsi og byggja viðbyggingu og svalir að vesturhlið hússins á lóðinni nr. 31 við Sunnuveg.
Stærð: Stækkun xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.