Bíldshöfði 12

Verknúmer : BN031038

340. fundur 2005
Bíldshöfði 12, br á innra frkl á 3. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í austurhluta þriðju hæðar framhúss (mhl 01) á lóðinni nr. 12 við Bíldshöfða.
Lagt fram tölvubréf húsfélagsins Bíldshöfða 12 dags. 7. júlí 2004 og bréf Gunnars Guðjónssonar hdl. dags. 23. desember 2004. Jafnframt lögð fram greinargerð Tækniþjónustu Ragnars G. Gunnarssonar dags. 15. mars 2005.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Við umfjöllun máls þessa hafa meðeigendur í húsinu haldið því þráfaldlega fram að umsækjandi hyggðist leigja húsnæði sitt út til íbúðar.
Fyrir þetta er þvertekið í bréfi lögmanns umsækjanda frá 23. desember 2004. Meðeigendum mun verða kynnt sú samþykkt sem hér hefur verið gerð. Embætti byggingarfulltrúa mun fylgjast með framvindu mála í húsinu. Komi til ólögmætra notkunarbreytinga á húsnæðinu verður samstundis tekið á málinu með vísan til 11. kafla byggingarreglugerðar nr. 441/1998.


338. fundur 2005
Bíldshöfði 12, br á innra frkl á 3. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í austurhluta þriðju hæðar framhúss (mhl 01) á lóðinni nr. 12 við Bíldshöfða.
Lagt fram tölvubréf húsfélagsins Bíldshöfða 12 dags. 7. júlí 2004
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Skila skal greinargerð löggilts hönnuðar um skolpdælukerfi.


336. fundur 2005
Bíldshöfði 12, br á innra frkl á 3. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í austurhluta þriðju hæðar framhúss (mhl 01) á lóðinni nr. 12 við Bíldshöfða.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.