Ofanleiti 17

Verknúmer : BN029349

4. fundur 2005
Ofanleiti 17,
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 11.08.04, vegna kæru Gunnars Sæmundssonar hrl. frá 16.06.04, þar sem kærð er samþykkt skipulags- og byggingarnefndar frá 5.05.04, vegna sólpalls og girðingar um sérnotaflöt íbúðar í Ofanleiti 15-17. Einnig lögð fram umsögn lögfræði- og stjórnsýslu skipulags- og byggingarsviðs dags. 31. janúar 2005.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

157. fundur 2004
Ofanleiti 17,
Lagt fram bréf lögfræðistofu Gunnars Sæmundssonar hrl. dags. 25. febrúar 2004, en þar er óskað eftir ógildingu á ákvörðun byggingarfulltrúa, vegna sólpalls og girðingar um sérnotaflöt íbúðar í Ofanleiti 15-17.
Jafnframt lögð fram umsögn lögfræði- og stjórnsýslu skipulags- og byggingarsviðs dags. 21. apríl 2004.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.