Bíldshöfði 8 og 10

Verknúmer : BN019961

3482. fundur 1999
Bíldshöfði 8 og 10, Lóðamarkabreyting
Ofanritaðir óska eftir samþykki byggingarnefndar til þess að breyta mörkum lóðarinnar nr. 8 við Bíldshöfða og stækka hana sbr. meðfylgjandi mæliblað mælingadeildar borgarverkfræðings dags. 11. október 1999.
Bíldshöfði 8:
Lóðin er 4484 ferm., sbr. lóðarsamning Litra N 18 nr. 375 dags. 11. maí 1967.
Bætt við lóðina samkvæmt skipulagi frá febrúar 1969 1039 ferm. Bætt við lóðina 1158 ferm. Lóðin verður 6681 ferm.
Bíldshöfði 10:
Lóðin er 4549 ferm. Sbr. lóðarsamning Litra x 35 nr. 167 dags. 29. september 1977. Bætt við lóðina 788 ferm. Lóðin verður 5337 ferm.
Sjá samþykkt borgarráðs 2. desember 1975, samþykkt skipulags- og umferðarnefndar 31. maí 1999 og samþykkt borgarráðs 1. júní 1999.
Frestað.
Vantar samþykki eigenda í Bíldshöfða 8 og samþykki eigeneda í Bíldshöfða 10.