Skipholt 19

Verknúmer : BN019778

102. fundur 1999
Skipholt 19, Bílastæði og eignarbreyting
Sótt er um leyfi til þess að breyta eignarhaldi, fjölga eignum um eina á 2. hæð, breyta gluggum, setja upp loftræstistokk á bakhlið, koma fyrir fellistigum og samþykki fyrir tveimur bílastæðum á lóðinni nr. 19 við Skipholt.
Jafnframt er erindi 19695 dregið til baka.
Gjald kr. 2.500
Samþykki meðeigenda fyrir bílastæðum dags. 28. september 1999 og samþykki meðeigenda fyrir útlitsbreytingum (á teikningu) fylgir erindinu.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


100. fundur 1999
Skipholt 19, Bílastæði og eignarbreyting
Sótt er um leyfi til þess að fella niður stiga milli 1. og 2. hæðar, breyta eignarhaldi, fjölga eignum um eina á 2. hæð og samþykki fyrir tveimur bílastæðum á lóðinni nr. 19 við Skipholt.
Jafnframt er erindi 19695 dregið til baka.
Gjald kr. 2.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.