Langagerði 54

Verknúmer : BN019594

3479. fundur 1999
Langagerði 54, Sólstofa
Sótt er um leyfi til þess að byggja sólstofu við norðvesturhlið hússins á lóðinni nr. 54 við Langagerði.
Stærð: Sólstofa kjallari 25,6 ferm., 1. hæð 1,8 ferm., samtals 27,4 ferm., 145,9 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 3.648
Bréf umsækjanda ódags. fylgir erindinu.
Synjað.
Byggingarnefnd synjar erindinu þar sem ekki hefur verið tekið tillit til sjónarmiða nefndarinnar sem fram komu við fyrri synjanir.
Við fyrri synjanir bókaði byggingarnefnd að sólskálinn falli illa að húsi og sé of stór. Nú hefur sólstofan verið minnkuð um 6,1 ferm., og vísar því byggingarnefnd enn til fyrri bókana með skírskotan til gr. 8.2 í byggingarreglugerð nr. 441/1998.