Laugavegur 53B

Verknúmer : BN019554

3478. fundur 1999
Laugavegur 53B,
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 7. ágúst 1999, vegna kæru eigenda og íbúa við Laugaveg 53A, 55 og Hverfisgötu 70 þar sem kærð er ákvörðun byggingarnefndar frá 25. febrúar 1999 um leyfi til þess að byggja verslunar-, þjónustu og íbúðarhús á lóðinni nr. 53B við Laugaveg.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun byggingarnefndar Reykjavíkur frá 25. febrúar 1999, sem staðfest var af borgarstjórn hinn 4. mars 1999, um að veita leyfi til byggingar verslunar-, þjónustu og íbúðarhúss úr steinsteypu á lóðinni nr. 53B við Laugaveg, er felld úr gildi.