Vesturgata 3

Verknúmer : BN019535

98. fundur 1999
Vesturgata 3, Gluggar ofl.
Sótt er um leyfi til þess að setja glugga, hurð og tröppur á austurhlið útbyggingar (kálfs), breyta tröppum að leikhúsi og að kjallara, stækka op á kjallara norðurhliðar, bæta eldvarnir í sal á 1. hæð og koma fyrir fellistiga á suðurhlið Hlaðvarpans á lóðinni nr. 3 við Vesturgötu.
Gjald kr. 2.500
Umsögn Árbæjarsafns dags. 23. ágúst 1999 ásamt umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 19. ágúst 1999 fylgja erindinu.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


96. fundur 1999
Vesturgata 3, Gluggar ofl.
Sótt er um leyfi til þess að setja glugga, hurð og tröppur á austurhlið útbyggingar (kálfs), breyta tröppum að leikhúsi og að kjallara, stækka op á kjallara norðurhlið, bæta eldvarnir í sal á 1. hæð og koma fyrir fellistiga á suðurhlið Hlaðvarpans á lóðinni nr. 3 við Vesturgötu.
Gjald kr. 2.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.