Hraunbær 102

Verknúmer : BN019479

3495. fundur 2000
Hraunbær 102 , skyggni og skilti
Sótt er um leyfi til þess að reisa nýtt skyggni og endurnýja skilti við bensínafgreiðsluna á lóðinni nr. 102 við Hraunbæ.
Gjald kr. 2.500
Samþykki meðlóðarhafa Hraunbæ 102D, 102F, 102G og 102H fylgir erindinu ásamt afriti af bréfum til húsfélaga Hraunbæ102A, 102B, 102C, 102E og Rofabæ 23.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Ljósmagn í þakbrún og á skiltum háð sérstöku samþykki byggingarfulltrúa sé um slíkt að ræða.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.


3477. fundur 1999
Hraunbær 102 , skyggni og skilti
Sótt er um leyfi til þess að reisa nýtt skyggni og endurnýja skilti við bensínafgreiðsluna á lóðinni nr. 102 við Hraunbæ.
Gjald kr. 2.500
Frestað.
Vantar samþykki meðlóðarhafa.