Skólavörðustígur 18

Verknúmer : BN019170

3474. fundur 1999
Skólavörðustígur 18, Úrskurður
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála vegna kæru Tölvukorta ehf, á ákvörðun byggingarnefndar frá 28. janúar 1999 um að synja umsókn um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara hússins nr. 18 við Skólavörðustíg ásamt endurbótum.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun byggingarnefndar Reykjavíkur frá 28. janúar 1999 um að synja umsókn um byggingarleyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara hússins nr. 18 við Skólavörðustíg í Reykjavík, ásamt endurbótum, er felld úr gildi. Lagt er fyrir byggingarnefnd að taka umsókn kærenda til meðferðar að nýju og gæta við afgreiðslu umsóknarinnar þeirra sjónarmiða, sem rakin eru í forsendum úrskurðar þessa.
Byggingarnefnd óskar eftir umsögn byggingarfulltrúa um málið.