Skaftahlíð 31

Verknúmer : BN019165

3479. fundur 1999
Skaftahlíð 31, Nýr bílskúr aftanvert á lóð úr forst. einingum
Sótt er um leyfi til að byggja bílgeymslu úr steinsteypu fyrir tvo bíla aftanvert á lóðinni nr. 31 við Skaftahlíð. Húsið verði byggt úr forsteyptum einingum með steindri áferð til samræmis við íbúðarhús og með torfi á þaki.
Stærð: Bílgeymsla 59,5 ferm., 196.3 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 4.907
Útskrift úr gerðabók skipulags- og umferðarnefndar dags. 19. ágúst 1999 ásamt umsögn Borgarskipulags dags. 18. júní 1999 fylgja erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Vottun eininga skal liggja fyrir eigi síðar en við úttekt á botnplötu.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


3474. fundur 1999
Skaftahlíð 31, Nýr bílskúr aftanvert á lóð úr forst. einingum
Sótt er um leyfi til að byggja bílgeymslu úr steinsteypu fyrir tvo bíla aftanvert á lóðinni nr. 31 við Skaftahlíð. Húsið verði byggt úr forsteyptum einingum með steindri áferð til samræmis við íbúðarhús og torfi á þaki.
Stærð: Bílgeymsla 59,5 ferm., 196.3 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 4.907
Frestað.
Málinu vísað til Borgarskipulags að ósk þess.