Naustabryggja 21-29

Verknúmer : BN019149

3474. fundur 1999
Naustabryggja 21-29, (fsp) Fjölb.h. með 21 íb. og bílag.kj.
Spurt er hvort leyft yrði að byggja fjölbýlishús nr. 23-27 úr steinsteypu á þrem hæðum auk rishæðar og bílageymslukjallara fyrir tuttugu og fimm bíla á lóðinni nr. 21-29 við Naustabryggju. Samtals yrðu tuttugu og ein íbúð í húsinu og fyrirkomulag í aðalatriðum í samræmi við meðfylgjandi teikningar.
Frestað.
Byggingarnefnd tekur ekki afstöðu til erindisins fyrr en uppdrættir að heildaruppbyggingu á lóðinni liggja fyrir.