Stekkjarbakki 4-6

Verknúmer : BN019135

3474. fundur 1999
Stekkjarbakki 4-6, Verslunarhús á 1 hæð með millipalli
Sótt er um leyfi til að byggja verslunarhús á einni hæð með millipalli að hluta á lóðinni nr. 4-6 við Stekkjarbakka. Húsið verði byggt úr límtré og samlokueiningum.
Stærð: 3040,7 ferm., 16529,3 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 406.475
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Vottun eininga skal liggja fyrir eigi síðar en við úttekt á botnplötu.