Nóatún 4

Verknúmer : BN019015

3474. fundur 1999
Nóatún 4 , Viðbygging á einni hæð
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á einni hæð úr steinsteypu við húsið á lóðinni nr. 4 við Nóatún til suðausturs. Efnisáferð og litur tekur mið af eldri byggingu.
Stærðir: 263,5 ferm., 1000 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 25.000
Samþykkt.
Óskar Bergsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


3473. fundur 1999
Nóatún 4 , Viðbygging á einni hæð
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á einni hæð úr steinsteypu við húsið á lóðinni nr. 4 við Nóatún til suðausturs. Efnisáferð og litur tekur mið af eldri byggingu.
Stærðir: xx
Gjald kr. 2.500 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.