Sogavegur 194

Verknúmer : BN019013

3479. fundur 1999
Sogavegur 194 , Viðbygging og bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja við húsið á lóðinni nr. 194 við Sogaveg og breyta þaki þess. Jafnframt er sótt um leyfi til að byggja áfasta bílgeymslu. Aðalbyggingarefni er steinsteypa, en hús og bílgeymsla verða klædd að utan með bárujárni og máluð. Ennfremur er umsókn nr. 17689 dregin til baka.
Stærðir: Viðbygging kjallari 9,7 ferm., 1. hæð 29,1 ferm., bílgeymsla 36,7 ferm., samtals 202,6 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 5.065
Erindinu fylgir samþykki nágranna að Sogavegi 192, 196 og 204, útskrift úr gerðabók skipulags- og umferðarnefndag dags. 19. ágúst 1999 ásamt umsögn Borgarskipulags dags. 26. júní 1999 fylgja erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


3473. fundur 1999
Sogavegur 194 , Viðbygging og bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja við húsið á lóðinni nr. 194 við Sogaveg og breyta þaki þess. Jafnframt er sótt um leyfi til að byggja áfasta bílgeymslu. Aðalbyggingarefni er steinsteypa, en hús og bílgeymsla verða klædd að utan með bárujárni og máluð. Ennfremur er umsókn nr. 17689 dregin til baka.
Stærðir: Viðbygging kjallari 9,7 ferm., 1. hæð 29,1 ferm., bílgeymsla 36,7 ferm., samtals xx rúmm.
Gjald kr. 2.500 + xx
Erindinu fylgir samþykki nágranna að Sogavegi 192, 196 og 204.
Frestað.
Málinu vísað til skipulags- og umferðarnefndar til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Vantar stærðir.