Smábýli 18 Kjalarnes

Verknúmer : BN019004

3473. fundur 1999
Smábýli 18 Kjalarnes, Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja smábýli í landi Móa á Kjalarnesi. Um er að ræða einbýlishús á einni hæð með sambyggðri bílgeymslu og gróðurskála sem verður smábýli nr. 18A.
Stærðir: Íbúð 181 ferm., bílgeymsla 53, 9 ferm., gróðurskáli 37,9 ferm., samtals 272,8 ferm., 1046,8 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 26.170
Synjað.
Með þremur atkvæðum.
Útlit húss og skipulag innanhúss óviðunandi.
Hilmar Guðlaugsson og Gunnar L. Gissurarson greiddu atkvæði með málinu.