Laugavegur 63

Verknúmer : BN018917

90. fundur 1999
Laugavegur 63 , Íbúðir (6 stk) á 2. og 3. hæð mhl 02
Sótt er um leyfi til að koma fyrir sex íbúðum á annarri og þriðju hæð hússins nr. 63 við Laugaveg (Vitastígsmegin) á lóðinni nr. 61-63 við Laugaveg. Jafnframt er sótt um tilheyrandi breytingu á skráningu og innra og ytra fyrirkomulagi, þ.á.m. svalir á austur- og vesturhlið.
Gjald kr. 2.500
Erindinu fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 5. og 9. maí 1999.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


89. fundur 1999
Laugavegur 63 , Íbúðir (6 stk) á 2. og 3. hæð mhl 02
Sótt er um leyfi til að koma fyrir íbúðum á annarri og þriðju hæð hússins nr. 63 við Laugaveg (Vitastígsmegin) á lóðinni nr. 61-63 við Laugaveg. Jafnframt er sótt um tilheyrandi breytingu á skráningu og innra og ytra fyrirkomulagi, þ.á.m. svalir á austur- og vesturhlið.
Gjald. kr. 2.500
Erindinu fylgir samþykki nokkurra meðlóðarhafa dags. 5. maí 1999.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.