Laugavegur 53B

Verknúmer : BN018856

3471. fundur 1999
Laugavegur 53B, Lögð fram umsögn
Lögð fram umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa dags. 27. apríl s.l., vegna kæru eigenda og íbúa Laugavegar 53a, Laugavegar 55 og Hverfisgötu 70 til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála móttekna 31. mars 1999 þar sem kærð er samþykkt byggingarnefndar frá 25. febrúar 1999, þar sem sótt var um leyfi til þess að byggja verslunar- og skrifstofuhús á lóðinni nr. 53B við Laugaveg.
Jafnframt lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála vegna stöðvunar framkvæmda á lóðinni, svo og stöðvunarbréf byggingarfulltrúa dags. 21. apríl 1999.
Umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa samþykkt.