Bakkastaðir 165

Verknúmer : BN018625

3469. fundur 1999
Bakkastaðir 165, Fjölbýlishús með bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús á tveimur hæðum með sex íbúðum ásamt bílskúr úr steinsteypu sem fer út fyrir byggingareit eins og fordæmi eru fyrir á nærliggjandi lóðum við húsið á lóðinni nr. 165 við Bakkastaði.
Stærð: Matshl,01., 1. hæð 399,6 ferm., 2. hæð 367,5 ferm., matshl, 02., bílgeymsla 85,1 ferm., samtals matshl. 1 og 2 852,2 ferm., 1.376,6 rúmm
Gjald 2.500 + 34.415
Samþykki lóðarhafa lóðanna nr. 163 og 167 við Bakkastaði staðfest á afstöðumynd og sniðmynd fylgir erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.