Knarrarvogur 2

Verknúmer : BN018490

3467. fundur 1999
Knarrarvogur 2, Breyta lóðarmörkum
Óskað er eftir samþykki byggingarnefndar til að breyta mörkum lóðanna Knarrarvogur 2 og Knarrarvogur 4 eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti mælingadeildar borgarverkfræðings dags. 17. febrúar 1999.
Knarrarvogur 2: Lóðin er 3852 ferm., sbr. lóðarsamning nr. 28235/83, dags. 10. október 1986. Bætt við lóðina 2 skikar 1667 ferm. Tekið af lóðinni 2 skikar 521 ferm. Leiðrétt vegna fermetrabrota 1 ferm. Lóðin verður 4999 ferm.
Knarrarvogur 4: Lóðin er 7798 ferm., sbr. yfirlýsingu A-16632/94, dags. 18. júlí 1994. Bætt við lóðina 2 skikar 448 ferm. Tekið af lóðinni 2 skikar 529 ferm. Lóðin verður 7717 ferm.
Sjá samþykktir skipulags- og umferðarnefndar 17. ágúst 1998 og 9. nóvember 1998 og samþykktir borgarráðs 25. ágúst 1998 og 10. nóvember 1998.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.