Seljavegur 12

Verknúmer : BN018330

3465. fundur 1999
Seljavegur 12, Lóðamarkabreyting
Sjöfn Kristjánsdóttir, fulltrúi borgarlögmanns, óskar eftir f.h., borgarsjóðs samþykki byggingarnefndar til að breyta mörkum lóðanna Seljavegur 12 og lóðar Ríkissjóðs Íslands (skráð í fasteignaskrá Mýrargata Ánanaust ) eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti mælingadeildar dags. 27. janúar 1999.
Seljavegur 12: Lóðin er 1715 ferm., sbr. samþykkt byggingarnefndar 29. janúar 1998. Bætt við lóðina úr lóð Ríkissjóðs Íslands 1380 ferm. Lóðin verður 3095 ferm.
Lóð Ríkissjóðs Íslands: Lóðin er talin 3148 ferm. Lóðin reynist 3206 ferm. Tekið af lóðinni og bætt við Seljaveg 1380 ferm. Lóðin verður 1826 ferm.
Sjá samþykkt skipulags- og umferðarnefndar 27. apríl 1998 og samþykkt borgarráðs 28. apríl 1998. Sjá ennfremur kaupsamning á milli Ríkissjóðs Íslands og borgarsjóðs Reykjavíkur dags. 6. maí 1998.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.