Egilsgata 3

Verknúmer : BN018236

3464. fundur 1999
Egilsgata 3, Lagt fram bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa til húseigenda á Egilsgötu 3, dags. 8. janúar 1999.
Jafnframt lögð fram bréf Domus Medica hf dags. 11. og 12. janúar 1999.
Byggingarnefnd bókaði vegna málsins:
Byggingarnefnd hafnar staðsetningu skilta á þaki hússins, en getur, verði um það sótt samþykkt skilti staðsett í líkingu við tillögu 2 sem fram kom í bréfi Domus Medica enda verði nánari staðsetning, útfærsla og lýsing skiltana gerð í samráði og með samþykkt byggingarfulltrúa.
Frestur til þess að fjarlægja skiltin af þaki hússins er gefinn 7 dagar frá birtingu tilkynningar þar um.
Byggingarfulltrúa falið að svara þeim fyrirspurnum sem fram komu í bréfum Domus Medica.