Norðurgrund 1, Kjalarnes

Verknúmer : BN018056

78. fundur 1998
Norðurgrund 1, Kjalarnes, Söfnunarstöð f sorpeyðingu
Sótt er um leyfi til að koma söfnunarstöð fyrir úrgang til endurvinnslu á lóðinni nr. 1 við Norðurgrund á Kjalarnesi. Jafnframt verði reist bráðabirgðaskýli fyrir starfsmenn á lóðinni.
Gjald kr. 2.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.