Fálkagata 20A

Verknúmer : BN017856

3459. fundur 1998
Fálkagata 20A , lækkun geymsluskúrs
Sótt er um leyfi til að lækka geymsluskúr á lóðinni nr. 20 við Fálkagötu þannig að vegghæð verði 230 cm og mænishæð 320 sm. Jafnframt er dregin til baka umsókn nr. 17131 og felldar úr gildi teikningar sem samþykktar voru á fundi byggingarnefndar 29. ágúst 1996.
Stærðir: 18,3 ferm., 50,3 rúmm.
Gjald kr. 2.500
Erindinu fylgir yfirlýsing lóðarhafa að Smyrilsvegi nr. 28 dags. 27. október 1998 og sáttagjörð lóðarhafa að Fálkagötu 18A, Smyrilsvegi 28 og Fálkagötu 20A dags. 26. október 1998.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.