Hverfisgata 15

Verknúmer : BN017830

3469. fundur 1999
Hverfisgata 15, Br. á innra frkl.
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi Safnahússins á lóðinni nr. 15 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 2.500
Bréf hönnuðar dags. 23. mars 1999 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Ath. lokaúttekt.
Samþykktin tekur ekki til stigahandriða sbr. bréf hönnuðar dags. 23. mars 1999. Sækja skal að nýju um byggingarleyfi eftir að teikningar hafa verið uppfærðar, sbr. ofangreint bréf og leggja fyrir byggingarnefnd eigi síðar en 29. apríl n.k.
Nefndin telur að sérstakur inngangur fyrir hreyfihamlaða á bakhlið hússins sé óviðunandi og að finna þurfi fullnægjandi lausn á aðgengi að framanverðu.


3459. fundur 1998
Hverfisgata 15, Br. á innra frkl.
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi Safnahússins á lóðinni nr. 15 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 2.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.