Tillaga formanns um eignaskiptayfirlýsingar

Verknúmer : BN017726

3458. fundur 1998
Tillaga formanns um eignaskiptayfirlýsingar, Tillaga formanns byggingarnefndar um eignaskiptayfirlýsingar
Á undanförnum misserum hefur biðlisti vegna eignskiptayfirlýsinga lengst verulega. Er nú svo komið að biðtími eftir staðfestingu byggingarfulltrúa á slíkum yfirlýsingum er orðin 4-6 mánuðir. Byggingarnefnd telur að svo langur afgreiðslutími sé með öllu ófær og leggur til við byggingarfulltrúa að ráðnir verði tímabundið löggiltir aðilar í að yfirfara eignaskiptayfirlýsingar.
Með því móti ætti að nást að vinna niður þann biðlista sem upp hefur safnast.
Byggingarnefnd beinir því til borgarráðs að veitt verði aukafjárveiting til þess að hefja verkið þegar.
Samþykkt.