Frostafold 25

Verknúmer : BN017577

87. fundur 1999
Frostafold 25 , Svalaskýli, hurð og gl á geym í kj.
Sótt er um leyfi til að gera geymslu í rými 0112 sem áður var uppfyllt rými og gera á það glugga og dyr og gera 6 svalaskýli á svölum hússins á lóðinni nr. 25 við Frostafold.
Stærðir: Svalaskýli samtals 70,8 ferm., 180,6 rúmm. Geymsla 34 ferm., 85 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 6.640
Samþykki lóðarhafa fylgir áritað á teikningu.
Erindinu fylgir samþykki þáverandi eigenda dags. 14. ágúst 1998 fyrir stækkun og notkun rýmis á 1. hæð og dags. 1. nóvember 1998 fyrir svalaskýlum.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

82. fundur 1999
Frostafold 25 , Svalaskýli, hurð og gl á geym í kj.
Sótt er um leyfi til að gera hurð og glugga á geymslu nr. 0112 á 1. hæð og breyta svölum hússins á lóðinni nr. 25 við Frostafold í svalaskýli.
Stærðir: xx
Gjald kr. 2.500 + xx
Erindinu fylgir samþykki þáverandi eigenda dags. 14. ágúst 1998 fyrir stækkun og notkun rýmis á 1. hæð og dags. 1. nóvember 1998 fyrir svalaskýlum.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Athygli umsækjanda er vakin á því að þetta er í annað sinn sem erindið er lagt fram með algjörlega ófullnægjandi gögnum.

72. fundur 1998