Nesvegur 74

Verknúmer : BN017331

3453. fundur 1998
Nesvegur 74, Tillaga um dagsektir
Lögð fram afrit af bréfum byggingarfulltrúa dags. 17. júlí s.l., og yfirverkfræðings byggingarfulltrúa dags. 19. júní s.l., til eigenda íbúðar neðri hæðar hússins á lóðinni nr. 74 við Nesveg.
Skrifstofustjóri byggingarfulltrúa leggur til við byggingarnefnd með vísan til 56. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, að nefndin feli byggingarfulltrúa að stöðva nú þegar óleyfisverslun í íbúðarhúsinu að Nesvegi 74 og leiti við það aðstoðar lögreglu, sbr. 6. mgr. 56. gr. skipulags- og byggingarlaga, ef þörf krefur.
Jafnframt verði málið kært samkvæmt ákvæðum 60. gr. sömu laga
Tillaga skrifstofustjóra byggingarfulltrúa samþykkt.