Suðurhús 2

Verknúmer : BN017330

3453. fundur 1998
Suðurhús 2, Tillaga v/dagsekta
Lögð fram afrit af bréfum byggingarfulltrúa, dags. 17. júlí s.l., og 15. júní s.l., til lóðarhafa Suðurhúsa 2.
Skrifstofustjóri byggingarfulltrúa leggur til við byggingarnefnd með vísan til 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 að lóðarhafa Suðurhúsa 2 verði gefinn frestur til 15. september 1998 til þess að vinna þau verk sem upp eru talin í bréfi frá 15. júní s.l., að öðrum kosti verði beitt dagsektum kr. 15.000 á hvern dag sem það dregst að ljúka verkinu og þær innheimtar samkvæmt ákvæðum fyrrnefndrar lagagreinar.
Jafnframt lagt fram bréf Helga R. Rafnssonar dags. 27. júlí 1998.
Tillaga skrifstofustjóra byggingarfulltrúa samþykkt.