Haðaland 11

Verknúmer : BN016937

3450. fundur 1998
Haðaland 11, Klæðning, gluggar
Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu í norðvesturhorni, stækka anddyri í suður, setja mænisþak yfir bílgeymslu, breyta gluggum, einangra og múra húsið að utan, setja upp heitan pott ásamt sturtuklefa og tilheyrandi girðingum og þaki yfir á lóðinni nr. 11 við Haðaland.
Stærð: Viðbygging 27,8 ferm., 85,8 rúmm. rúmmálsaukning bílgeymslu 14,8 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 2.515
Bréf eiganda, dags. 6. maí 1998 og samþykki meðlóðarhafa, dags. 14. maí 1998 fylgir erindinu.

Synjað.
Samræmist ekki yfirbragði hverfisins.