Síðumúli 28

Verknúmer : BN016907

3449. fundur 1998
Síðumúli 28, Lagt fram bréf
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 11. maí 1998 vegna kæru á samþykkt byggingarnefndar frá 18. desember 1997 um leyfi til að reisa fjarskiptamastur á lóðinni nr. 28 við Síðumúla.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun byggingarnefndar Reykjavíkur frá 18. desember 1997 um að veita Mótási ehf. v. Íslenska farsímafélagsins ehf. leyfi til að reisa 30 metra hátt fjarskiptamastur úr stáli á suðurmörkum lóðarinnar nr. 28 við Síðumúla ásamt tilheyrandi búnaði við vesturmörk lóðarinnar skal standa óbreytt.