Hæðargarður 29

Verknúmer : BN016736

61. fundur 1998
Hæðargarður 29, girðing vestan lóðar
Sótt er um leyfi til að reisa girðingu úr eins metra háu vírneti í samræmi við meðfylgjandi mælingu mælingardeildar dags. 31. október 1995, vestan lóðarinnar nr. 29 við Hæðargarð.
Gjald kr. 2.500
Bréf stjórnar húsfélagsins dags. 20. apríl 1998 og skilmálar borgarverkfræðings dags. 25. mars 1998 fylgja erindinu.
Samþykkt.
Þinglýsa skal ákvæði um skilyrði borgarverkfræðings.