Seljavegur 2

Verknúmer : BN016324

3442. fundur 1998
Seljavegur 2, Lóðarmarkabreyting
Skrifstofustjóri borgarverkfræðings óskar eftir samþykki byggingarnefndar til að breyta mörkum lóðarinnar Seljavegur 12 og stækka hana eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti mælingadeildar Reykjavíkurborgar dags. 9. nóvember 1987.
Tillaga að breytingu lóðamarka skv, yfirlýsingu nr. 21920/82, dags. 22.8.1982, lóðin er 1421 ferm. Tekið af lóðinni og bætt við Vesturgötu 69-75 sbr. samþykkt byggingarnefndar frá 21. nóvember 1985 og leigusamning um vesturgötu 69-75, nr. 47406/85, dags. 26.11.1985, 51 ferm., viðbót úr landi borgarsjóðs (lóð Selbúða) 345 ferm., lóðin verður 1715 ferm.
Samþykkt.