Ásgarður 1

Verknúmer : BN015671

45. fundur 1997
Ásgarður 1 , Sótt er um útitröppur og inngang í kjallara.
Sótt er um leyfi til að setja inngang og útitröppur ásamt geymslurými í norður á kjallara hússins á lóðinni nr. 1 við Ásgarð.
Stærð útigeymsla: 6,4 ferm., 11,5 rúmm.
Gjald kr. 2.387 + 275
Samþykki meðeigenda í Ásgarði 1-17 dags. 16. sept. 1997 og samþykki eiganda í Ásgarði 3 fyrir sam. vegg dags. í sept. 1997 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.