Leirubakki 2-16

Verknúmer : BN015334

42. fundur 1997
Leirubakki 2-16, Sótt er um leyfi til klæðningar á húsinu.
Sótt er um leyfi til þess að klæða húsið á lóðinni nr. 2-16 við Leirubakka að utan með sléttri klæðningu (stenex).
Gjald kr. 2.387
Ástandsskýrsla Línuhönnunar dags. mars 1996 fylgir erindinu og fundargerð húsfélagsins frá 28. maí 1997.
Samþykkt.

3430. fundur 1997
Leirubakki 2-16, Sótt er um leyfi til klæðningar á húsinu.
Sótt er um leyfi til þess að klæða húsið á lóðinni nr. 2-16 við Leirubakka að utan með loftræstri klæðningu (steni).
Gjald kr. 2.387
Ástandsskýrsla Línuhönnunar dags. mars 1996 fylgir erindinu og fundargerð húsfélagsins frá 28. maí 1997.
Frestað.
Byggingarnefnd getur ekki fallist á steindar plötur en hefur ákveðið að leyfa múrklæðningu eða sléttar plötur í hverfinu.